Sumarbridge á Akureyri
mánudagur, 25. maí 2009
Spilað verður á þriðjudögum kl. 19:30 í allt sumar í Lionssalnum, Skipagötu 14, 4. hæð.
Allir bridgespilarar eru boðnir hjartanlega velkomnir í léttan
tvímenning. Aðstoðað verður við myndun para ef þarf og kaffi
á könnunni. Hér er upplagt tækifæri fyrir heimamenn og ferðalanga
að grípa í spil yfir sumartímann.
Borðgjald er 800 kr. (500 kr. fyrir lífeyrisþega).
Sjáumst í sumarbridge!
Stjórn B.A.