Brids á íslensku
föstudagur, 26. maí 2023
Bridgesambandið fékk veglega gjöf á dögunum frá Jóni Hjaltasyni, Guðmundi P. Arnarssyni, Málningu ehf og Háspennu ehf.
Búið er að íslenska öll helstu hugtök í brids og búið að gera mjög aðgengilegt. Búið er að hengja upp mynd í húsnæði Bridgesambandsins og einstök félög munu fá eintök send með spilagjöfinni eftir sumarfrí.
Í dag fékk Lilja Alfreðsdóttir ráðherra eintak til varðveislu en hún spilar sjálf brids. Stendur til að fleiri ráðherrar fái eintak á næstunni.