Evrópumót 2020 færist til 2021
þriðjudagur, 9. júní 2020
Evrópumótinu í Bridge sem vera átti á Madeira núna í júni
s.l. frestað um ár Bridgesambandið mun skipuleggja
æfingar og val á landsliðum næsta haust . Anton Haraldsson
mun áfram sjá um landsliðið í opna flokknum og það landsliðið hefur
spilað nokkra landsleiki á netinu á síðustu vikum. Toni segir þetta
um landsliðið "Landsliðsstarf í opna flokknum er formlega lokið í
bili. Landsliðsnefnd fundar í haust um framhaldið og næstu verkefni
liðsins. Ég finn fyrir auknum áhuga okkar bestu spilara að vera með
og er það mjög góð þróun. Vonandi náum við saman góðum hóp sterkra
para í haust til æfinga fyrir næstu verkefni"
Kv Jafet