Landsliðshópur í Opnum flokki og Kvennaflokki 2011
Landsliðsnefnd veturinn 2010-2011 óskar eftir umsóknum frá
pörum sem hafa áhuga að mynda landsliðshóp í opnum flokki og
kvennaflokki.
Framtíðarsýn landsliðsnefndar er að vera ávallt með 6-8 pör í
reglulegum æfingum allt árið en ef eftirspurn verður mikil gæti
nefndin þurft að tvískipta starfinu í hvorum flokki fyrir
sig.
Óskað er eftir pörum sem hafa áhuga á að spila í landsliði eða
landsliðsverkefnum og uppfylla meðal annars eftirfarandi:
Hafa áhuga og metnað að spila fyrir Ísland á bridgemótum
Geta æft/unnið/spilað reglulega sem par. Innifalið í því gæti
verið
Sækja fyrirlestra og leysa verkefni
Æfingar , t.d. í húsnæði BSÍ eða á netinu.
Spilamennska, t.d. í húsnæði BSÍ eða á netinu.
Vinna með einkaþjálfara/þjálfurum
Geta sett landsliðsstarfsemi í forgang og leyst þau verkefni sem
þau fá í hendurnar
Spilarar þurfa að vera tilbúnir að aðrir fari yfir spilin þeirra
.
Landsliðsnefnd ætlar að bjóða upp á metnaðarfullt og árangursríkt
æfingaprógram í báðum flokkum í vetur. Reynt verður að fjölga
verkefnum í hvorum flokki, en það ræðst af fjárhagsstöðu BSÍ og
landsliðsnefndar.
Þau pör sem koma til með að skipa landsliðshópinn þurfa að vera
tilbúinn
í verkefni fram að 1. september 2011. Ákvörðun um
tímasetningar,
gjaldtöku og mögulega flokkaskiptingu verður ákveðin og gefin út
eftir að þátttaka liggur fyrir.
Tekið verður við umsóknum til föstudagsins 24. september á skrifstofu BSÍ.