Landslið
Búið er að velja fimm para landslið í opnum flokki fyrir komandi verkefni. Þetta eru Jón Baldursson og Þorlákur Jónsson, Ragnar Magnússon og Páll Valdimarsson, Þröstur Ingimarsson og Júlíus Sigurjónsson, Sveinn R. Eiríksson og Ómar Olgeirsson og Magnús Magnússon og Sigurbjörn Haraldsson. Framundan eru boðsmót í Bonn, Evrópumót í Belgíu, briddsvika í Svíþjóð og síðan NM á næsta ári.
Á EM fara Jón og Þorlákur, Magnús og Sigurbjörn og Þröstur og
Júlíus. Svo framarlega sem engar breytingar verða á pörum og menn
haldi áfram að sinna vinnu og æfingum í spilinu fara Ómar og Sveinn
og Ragnar og Páll á NM 2011.
Vonandi halda pörin í B-hópnum áfram að bæta sig og þrýsta
hressilega á þennan fimm para hóp sem er valin fram yfir NM 2011 að
óbreyttu.
Einnig er stefnt að áframhaldandi landsliðsstarfi strax í haust og
er það von lansliðsnefndar að enn fleiri pör bætist þá í hópinn og
starfið haldi áfram að styrkjast.
Stefnt er að því að senda kvennalið á briddsviku í Svíþjóð og svo
landslið á NM 2011.
Fyrirliðamál í opnum flokki er ekki komin á hreint.