Landsleikur við Dani
Sjötta lotan í landskeppni Íslands og Danmerkur var Íslendingum í hag. Þeir unnu 19-11 og stórsigur 25-3. Lokastaðan í viðureigninni fór því 191-165 Íslendingum í hag.
Ísland - Danmörk Ísland - Danmörk
1. 19-11 20-10
2. 5-25 3 -25
3. 21-9 10-20
4. 19-11 19-11
5. 21-9 10-20
6. 19-11 25-3
Lokastaða: 191-165 fyrir Ísland. Góður dagur í bridge og handbolta :-)
Íslenska landsliðið í Opnum flokki í bridge mun spila æfingaleik við frændþjóð sína Dani um næstu helgi. Æfingaleikur þessi er lokaáfangi beggja þjóða í undirbúningi landsliða sinna fyrir Evrópumótið í Opnum flokki í bridge, 2008, sem fram fer í
Æfingaleikur Íslands og Danmerkur mun verða spilaður á Grand Hótel laugard. 31. maí og sunnud. 1. júní og eru áhugasamir hvattir til að koma og fylgjast með. Spilaðar verða 6 lotur, 3 á laugardag og 3 á sunnudag. Spilamennskan mun standa yfir frá kl. 11:00 til kl. 21:00 á laugardag og 10:30-20:30 á sunnudag. Sýnt verður frá viðureigninni á Bridgebase
Íslenska liðið stóð sig mjög vel á síðasta Evrópumóti og endaði í 7. sæti af 37 þátttökuþjóðum. Danir hafa staðið mjög framarlega í bridge í áraraðir á alþjóðlegan mælikvarða. Ljóst má vera að báðar þjóðir munu leggja sig fram um að enda í einu af 6 efstu sætunum á Evrópumótinu í Frakklandi, því 6 efstu þjóðirnar vinna sér rétt til þess að spila á Heimsmeistaramótinu í Bridge í Brasilíu á næsta ári. Það má búast við spennandi leik á milli þessarra þjóða um helgina.
Íslenska liðið er skipað eftirtöldum spilurum:
Þorlákur Jónsson
Steinar Jónsson
Bjarni Einarsson
Aðalsteinn Jörgensen
Jón Baldursson
Sverrir Ármannsson
Björn Eysteinsson, er fyrirliði
Danska liðið er skipað eftirtöldum spilurum:
Gregers Bjarnarson
Jens Auken
Sören Christiansen
Michael Askgaard
Niels Kröjgaard
Sören A Christansen