Bermúdaskálin og Feneyjarbikarinn
Nú er að síga á seinni hlutann á heimsmeistaramótinu í bridge.
Íslendingar eiga fulltrúa í mótinu um Feneyjarbikarinn en Hjördís Eyþórsdóttir spilar fyrir USA 2. Sveitin tapaði í 8-liða úrslitum fyrir Frakklandi með aðeins 1 impa!
Norðmenn og Bandaríkjamenn spila til úrslita í opnum flokki á heimsmeistaramótinu í brids, sem stendur nú yfir í Shanghai í Kína. Í kvennaflokki spila Bandaríkin og Þýskaland til úrslita.
Norðmenn unnu sigur á Hollendingum og Bandaríkjamenn unnu Suður-Afríkumenn í undanúrslitum í opnum flokki. Í kvennaflokki vann bandaríska liðið það kínverska og Þjóðverjar unnu Frakka.
Úrslitaleikirnir hefjast á morgun og þeim lýkur á laugardag.
Hægt er að fylgjast með mótinu á heimasíðu mótsins
Lifandi úrslit má finna hér á Swangames
Einnig má sjá beinar útsendingar frá völdum leikjum á Bridgebase og á BridgebaseTV