Miðað við að öll 9 kjördæmin mæti til leiks, Færeyjar þar með taldar, þá mun tímaplanið verða eins og sést hér að neðan.tímatafla-2024.pdf (bridge.
Bridgefélag Reykjavíkur hefur lokið öllum sínum keppnum starfsárið 2023-2024. Þó er eitt spilakvöld eftir sem verður svokallað vanir/óvanir spilakvöld sem fer fram 16. apríl.
Silfurstigin fyrir Reykjavíkurmótið í sveitakeppni eru komin inn á heimasíðu BR.2023-2024 (bridge.
Íslandsmót kvenna í sveitakeppni var spilað um helgina. Hér má sjá útfyllt gullstigablað fyrir allar sveitir. (ATH. Skjalið sýnir sigra, jafntefli og töp en ekki gullstigin sjálf)íslandsm-kv-svk-2024-gullstig.
Silfurstigin komin á heimasíðu BR. reykjavíkurmót-2024-silfurstig.pdf (bridge.
Byrjum kl. 11;00 og spilum 5 umferðir fyrir matarhlé sem verður 13:30 -13:50. Eftir mat eru spilaðar 9 umferðir og búið kl.
Silfurstigin fyrir Jólamót BR komin á heimasíðuna.2023-2024 (bridge.
Minningarmót Gylfa Pálssonar verður haldið á RealBridge á Nýársdag kl. 13:00. Spiluð verða 30 spil í 10 umferðum.Hægt er að skrá fyrirfram í mótið hér að neðan en það er eftir sem áður á ábyrgð hvers og eins að koma inn og velja borð áður en mótið er sett af stað.
Mótið hefst kl. 13:00 þar sem það er spilað á laugardegi þetta árið. Kaffihlé um klukkan hálf fjögur og búið um eða uppúr sjö. Spilaðar verða 11 umferðir, 4 spil í setu, 44 spil í allt.
Íslandsmótið í Butlertvímenningi er spilað á morgun, laugardag, og hefst kl. 10:00 Spilaðar verða 13 umferðir, monrad, 4 spil í setu. Tímataflan er komin.
Íslandsmótið í Parasveitakeppni verður spilað um helgina. Spilaðar verða 8 umferðir, monrad, 12 spila leikir. Byrjað 10:00 báða dagana. Tímataflan er hér.
Tímaplanið fyrir Deildakeppnina, seinni helgi, er það sama og fyrri ár. Spilaðir eru 16 spila leikir.Athugið að leikur um bronsið í fyrstu deild er spilaður samhliða fyrstu lotu í úrslitaleiknum.
Aðaltvímenningur BR hefst í kvöld kl. 19:00. Verður vonandi fjögur kvöld en ef þátttakan verður dræm er eins víst að keppnin verði stytt í þrjú kvöld.
Bridgefélag Reykjavíkur hefur þá stefnu að spila mikið af sveitakeppnum en minna af tvímenningum. Enn ein Sveitakeppnin hefst annað kvöld kl. 19:00. Þetta verður 3ja kvölda sveitakeppni með 3x9 spila leikjum á kvöldi.
Á morgun, þriðjudaginn 01. nóvember hefst 3ja-4ra kvölda sveitakeppni. 2x14 spila leikir á kvöldi. Skráning á heimasíðu BR. Allir velkomnir. Drífa sig að skrá eða auglýsa eftir væng.
Haustsveitakeppni BR lauk í gærkvöldi með sigri Info Capital sem hlaut 141,17 stig af 180 mögulegum. Í öðru sæti urðu liðsmenn SFG með 124,77 stig og J.
Vetrarstarf Bridgefélags Reykjavíkur hefst þriðjudaginn 20. september kl. 19:00 með 3ja kvölda sveitakeppni. Reiknað er með að spila 3 leiki á kvöldi.
Reykjavíkurmótið í sveitakeppni fer fram á spilakvöldum BR. Stefnt er að því að byrja mótið 8. mars og spila það á 4-6 kvöldum, fyrirkomulag háð þátttöku.
Jólamót Bridgefélags Reykjavíkur var spilað í gærkvöldi á netsíðunni RealBridge. 38 pör spiluðu og herma heimildir að hvert og eitt þeirra hafi haft bæði gagn og gaman af.
Spilakvöld BR á þriðjudagskvöldum hafa gengið ágætlega og aðeins eitt spilakvöld fallið niður. 21 spilari hefur mætt 9 sinnum eða oftar fram að jólum og fara í pottinn fyrir Færeyjamótið þar sem einhver fingralangur mun draga út þá heppnu.
Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í veturSjá nánar