Hrannar Erlingsson og Sverrir G Kristinsson unnu Jólamót BR með yfirburðum
miðvikudagur, 30. desember 2020
Jólamót Bridgefélags Reykjavíkur
var spilað í kvöld á internetinu, RealBridge.online. 42 pör
mættu og áttu skemmtilega kvöldstund yfir skemmtilegasta spili
heims sem heimsfaraldur fær ekki stoppað.
Sverrir Kristinsson og Hrannar Erlingsson unnu með þvílíkum
yfirburðum að jaðrar við galdra.
En Sverrir er afmælisbarn dagsins og óskum við honum til
hamingju með það.
BR óskar öllum verðlaunahöfum til hamingju.
GLEÐILEG NÝTT ÁR OG TAKK FYRIR ÞAÐ LIÐNA.