Stefán Stefánsson og Magnús Eiður unnu Aðaltvímenning BR
þriðjudagur, 10. mars 2020
Aðaltvímenningi Bridgefélags Reykjavíkur lauk nú í kvöld. Hæsta skori kvöldsins náðu Magnús Eiður Magnusson og Stefán Stefansson með 66,1% skor og skriðu fram úr þeim Aðalsteini Jörgensen og Sverri G Ármannssyni í síðustu umferðinni en þeir höfðu leitt allt mótið. Magnús og Stefán enduðu með 928 stig gegn 925 stigum Alla og Sverris.
Það verður spilað áfram í BR á meðan guð og Kóróna leyfa og hefst Aðalsveitakeppnin því næsta þriðjudag.