Ekki verður spilað hjá Briddsfélagi Kópavogs á næstunni
miðvikudagur, 11. mars 2020
Spilamennsku hjá Bridgefélagi Kópavogs hefur verið hætt tímabundið, eða þar til annað verður ákveðið.
Til fróðleiks skal tekið fram að það komu fyrirmæli frá Kópavogsbæ um að loka Gjábakka, félagsheimili aldraðra, þar sem spilað hefur verið undanfarinn áratug.
Þar er nú verið að þrífa og sótthreinsa hátt og lágt.