Rangæingar -- Peyjarnir

miðvikudagur, 26. febrúar 2020

Sl. þriðjudag hófum við Samverkstvímenninginn, sem er 5 kvölda keppni.  Við borðin settust 10 pör.

Þeir eru fisléttir á fæti, smaladrengirnir frá Grund og Arnarhóli.  Teinréttir og tígullegir tóku þeir yngri kynslóðina til kostanna í gær.   Æskan var gott blað en æskan fór hreint ekki heim með gott blað í gær.   Peyjarnir, annar á níðræðis- og hinn á áttræðisaldri smöluðu saman 64,8% skori.   

Næstir, aldeilis í gang hrokknir, Runólfur og Óli með 58,8% skor.   Þriðju inn urðu klerkarnir, 54,6% skor.

Úrslit og spil má sjá hér

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar