Rangæingar -- Peyjarnir
miðvikudagur, 26. febrúar 2020
Sl. þriðjudag hófum við Samverkstvímenninginn, sem er 5 kvölda keppni. Við borðin settust 10 pör.
Þeir eru fisléttir á fæti, smaladrengirnir frá Grund og Arnarhóli. Teinréttir og tígullegir tóku þeir yngri kynslóðina til kostanna í gær. Æskan var gott blað en æskan fór hreint ekki heim með gott blað í gær. Peyjarnir, annar á níðræðis- og hinn á áttræðisaldri smöluðu saman 64,8% skori.
Næstir, aldeilis í gang hrokknir, Runólfur og Óli með 58,8% skor. Þriðju inn urðu klerkarnir, 54,6% skor.
Úrslit og spil má sjá hér