Rangæingar -- Fallið á skallann
Nú er farið að síga á seinni hlutann í sveitakeppninni, fjórða og næstsíðasta umferð var leikin í gær.
Skallagrímsmenn fengu heldur betur fyrir ferðina í gær er þeir urðu á vegi Víga-Glúms. Voru klofnir í herðar niður svo út gekk augað, eins frægt var. 18 vegin stig í hús Viga-Glúms en Skallagrímsmenn máttu halda heim á leið í tveimur hlutum með 2 vesæl stig. "Vonandi fáum við sæmilega andstæðinga næst, þessir voru heldur léttir" sagði Fisksalinn og strauk Sýslumannsfrúnni, sveitunga sínum, mjúklega um mjóbakið.
Víga-Glúmur tók þar með toppsætið með valdi af andstæðingum sínum, eru með 55 stig en Skallagrímur er nú í öðru sæti með 50 stig.
Finnbogi rammi, sem þótti einmitt fremur ódæll í æsku, er enn ódæll, alla vega að mati sveitunga Hrafnkels Freysgoða. Þeir urðu að gera sér að góðu 3 stig gegn 17 stigum Rammans.
Logn var og ládauður sjór í þriðju viðureign kvöldsins, þar með Grettir sterki og Hallfreður vandræðaskáld kváðust á. Leikurinn fór 11-9, vandræðaskáldinu í hag.
Butlerkóngar kvöldins urðu fisksalarnir framsettu: 1,77 impar.
Butlerframagosar kvöldsins: Yngissveinarnir Elli og Kalli, 1,45 impar.
Butlertígulgosar kvöldsins: Sýslumannsfrúin og fylgdarpiltur, 0,67 impar.
Úrslit og stöðu í sveitakeppninni má sjá hér
Butler úr fyrri hálfleik hér og þeim seinni hér.
Heildarstaðan í butlernum er svo hér