Aðalsteinn og Sverrir Gaukur efstir í BR
þriðjudagur, 25. febrúar 2020
Annað kvöldið af fjórum í Aðaltvímenningi Bridgefélags Reykjavíkur var spilað í kvöld. Hæsta skori kvöldsins náðu Aðalsteinn Jörgensen og Sverrir G Ármannsson með 64,3% skor. Þeir eru einnig efstir samanlagt með 489 stig sem gerir 62,4% skor.