Sveit Hótels Hamars er Reykjavíkurmeistari 2020
sunnudagur, 19. janúar 2020
Reykjavíkurmótið í sveitakeppni var spilað nú um helgina. Sextán sveitir spiluðu, þar af ein gestasveit. Kvóti Reykjavíkur er 15 sveitir svo allar sem kepptu um réttinn komust áfram í Undanúrslit Íslandsmótsins. sem fara fram helgina 17-19 apríl.
Sveit Hótels Hamars sigraði með 227,29 stig sem gerir 15,15 stig að meðaltali í leik. Í öðru sæti varð sveit Grant Thornton með 210,41 stig og þriðju J.E. Skjanni með 204,31 stig.