Rangæingar -- Úrslit í jólamóti
Jólamót Bridgefélags Rangæinga var haldið í Hvolnum á Hvolsvelli þann 28. desember. Til leiks mættu 16 pör og spiluð voru 44 spil.
Hart var barist sem fyrrum hér í Rangárþingi en það fór eins fyrir okkur heimamönnum og Gunnari og Njáli forðum. Vorum ofurliði bornir af aðkomumönnum.
Sigurvegarar urðu Billi og Sigurður Björgvin með 58,4% skor. "Engin tíðindi, vanur að vinna þetta mót" sagði Billi. Næstir inn urðu Garðar og Sigfinnur með 55,9% skor. Þriðju í mark, á bara góðum tíma eftir aldri, Björn bóndi og Þröstur með 54,4% skor.
Veitt voru myndarleg verðlaun fyrir 4 efstu sætin og restin af þátttakendum var svo dregin úr skorkortum, svo allir fengu eitthvað. Að góðum sveitasið var allt það besta sem til var í búrinu dregið fram í tilefni af gestakomunni. Vel var því veitt af kræsingunum í leikhléi.
Úrslit og spil má sjá hér