Rangæingar -- Jólamót félagsins 28. desember

laugardagur, 21. desember 2019

Jólamót Bridgefélags Rangæinga verður haldið laugardaginn 28. desember í Hvolnum á Hvolsvelli.  

 

Spilamennska hefst kl. 11,00 og spiluð verða 44 spil.   Veitingar innifaldar í hóflegu keppnisgjaldi.  Afslöppuð spilamennska í anda jóla og án sérstaks keppnisstjóra.  

Álitamál leyst við borðið en komi til ágreinings geta menn skotið ágreiningsefninu til sérstakrar kærunefndar, sem fundar á Raufarhöfn þann 17. febrúar nk.    Mæta þarf fyrir nefndina.

Skráning í mótið er hér

Þátttökulistann má sjá hér

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar