Mr. Vú og félagar eru Kópavogsmeistarar í sveitakeppni

fimmtudagur, 5. desember 2019

Aðalsveitakeppni Bridgefélags Kópavogs lauk í kvöld með naumum sigri sveitar Mr. Vú sem fékk 185,82 stig, einu stigi meira en Uppsveitir Kópavogs sem fékk 184,82. Eftir 13 umferðir og 182 spil gat það nú varla verið jafnara.

Á eftir var spilaður stuttur tvímenningu, 16 spil og má sjá öll úrslitin á heimasíðunni.

Næsta fimmtudag verður svo Jólatvímenningur BK og allir velkomnir.

HEIMASÍÐAN

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar