Guðmundur Páll og Þorlákur unnu Jólamót BR

mánudagur, 30. desember 2019

Jólamót Bridgefélags Reykjavíkur var spilað í kvöld. 64 pör mættu og áttu skemmtilega kvöldstund og spiluðu 44 spil. Sigurvegarar urðu Guðmundur Páll Arnarson og Þorlákur Jónsson með 1636 stig, sem gerir slétt 60% skor. Gísli Þórarinsson og Þórður Sigurðsson urðu í öðru sæti með 56,8% Efsta blandaða parið var Jóhanna Gísladóttir og Vigfús Vigfússon og efsta kvennaparið Harpa Fold Ingólfsdóttir og María Haraldsdóttir Bender.

Bridgefélag Reykjavíkur þakkar öllum þeim er mættu og einnig þeim sem spiluðu á þessu ári.

GLEÐILEGT NÝTT ÁR

HEIMASÍÐAN

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar