Rangæingar -- Tvöfaldur sigur
Sl. þriðjudag var komið að fyrsta ölkvöldi vetrarins. Leikinn var barómeter með þátttöku 11 para.
Á ölkvöldi verða allir sigurvegarar, þó einstaka par verði ögn meiri sigurvegarar en aðrir.
Athygi vakti tvöfaldur sigur feðganna í Neðra-Dal, sem unnu bæði heiðursflokkinn og unglingaflokkinn. 3 bjórar á mann að launum. "Hann stóð sig vel kallinn og tryggði okkur verðlaunaféð" sagði Hjalti. "Var þó tvísýnt um tíma". Í fyrstu setunni unnu þeir nefnilega sigurvegara kvöldins og virtust þá stefna eitthvað allt annað en í heiðurssætið.
Sú nýbreytni var tekin upp við útdeilingu verðlaunafjár, og verður framvegis, að hitti par á slétt 50% skor eftir kvöldið, fær parið 4 bjóra á mann. Ekkert par hitti á það, svo potturinn dreifðist á önnur verðlaun.
Tottenhamsætið (efstir á síðu tvö með hæsta skor undir meðalskor) féll í hlut Selfyssinganna Sigurðar Reynis og Garðars, 49,5% skor. Tveir bjórar á mann og hefur margur farið bæjarleið fyrir minna.
Flokk Suðurlandsmeistara vann nýkjörinn Suðurlandsmeistari, Björn Dúason, sem hafði með sér frænda sinn og skólabróður úr Biblíuskólanum, Pétur Hartmannsson. Þeir kepptu einir í þessum flokki, 51,0% skor og engin aukaverðlaun, bara einn bjór á mann.
Öldungaflokkinn unnu Elli og Kalli örugglega, enda Kalli sá eini sem nær lágmörkum í þennan flokk. 51,0% Suðurlandsmeistaraskor og tveir bjórar á mann.
Það er kalt á toppnum. Það staðfesta Svavararnir sem sátu á efsta borði allt kvöldið en urðu á endanum að gera sér fjórða sætið að góðu með 53,1% skor.
Presturinn heldur meðhjálparanum uppteknum og hleypir honum ekki vestur. Þeir tóku 2. sætið með 55,4% skor, sjónarmun á undan Bergþórshvolsbaróninum og Hlíðarendakempunni sem náðu 54,7% skori.
Sigurvegarar urðu hetjur gítarhljómanna, Kalli og Sigurður, 63,8% skor.
Úrslit og spil má sjá hér