Rangæingar - Röskur afleysingamaður

miðvikudagur, 23. október 2019

Sl. þriðjudag mættu 8 pör til leiks í Gunnarshólma.

"Ég er alltaf góður og þarf ekki nema svona meðalmakker til að gera það gott.  Nóg að hann geti sorterað sæmilega og meldi ekki grand á undan mér" sagði Þórður afleysingamaður kátur.  "Svo er ég hjartahlýr, þó ég sé handkaldur" bætti hann við.

Bílstjórinn leysti trillukarlinn af, sem var heima að strauja nærbuxurnar fyrir Madeiraferðina.  "Ég þarf þess nú ekki" sagði Þórður glaðbeittur, "Hún Imma mín er auðvitað löngu búin að því."

Munaðarlaus bankastjórinn, eftir að slátrarinn hélt í austurveg, fékk því bílstjórann með sér að borðinu.   Þeir B-mennirnir nældu sér í 63,1% skor. 

Næstir inn komu Örninn og Kanastaðabóndinn með 58,3%.   Þriðju urðu svo presturinn og guðspjallaneminn með 54,% skor.

Úrslit og spil má sjá hér

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar