Rangæingar - Í heimasveit er best
Sl. þriðjudag hófum við Rangæingar leik, í þetta sinn í Gunnarshólma þar sem félag nútímafimleikamanna var við æfingar á Heimalandi með borða sína og hringi. Mætingin var heldur þunn eða 7 pör. Líkleg skýring er talin sú að smalar séu enn á fjalli, enda alkunna að Suðurlandið er vandleitað. Við vonumst þó eftir því að verulega rætist úr áður en október er allur.
"Hér er best að spila, í minni heimasveit" sagði baróninn á Bergþórshvoli, kampakátur að leikslokum. "Ekki rétt Óli minn, loftslagið hér gerir okkur gott?", bætti hann við og klappaði Óla sínum á bakið. Þeir fóstbræður urðu enda efstir með 65,6% skor. Vel gert, þó á heimavelli sé.
"Tek undir með baróninum, hér í Gunnarshólma er gott að vera" sagði Kanastaðabóndinn og strauk Erni sínum um kollvikin. Þeirra hlutur í skorinu varð 58,3% og 2. sætið.
"Kann betur við mig út af Grindavík. Þar eru fengsæl mið. Hér í Landeyjum hefur aldrei fengist bein, nema kannski einstaka háfur og ég fer nú ekki í stígvél eingöngu til að sækja það ómeti" rumdi í Gísla trillukarli en þeir trillukarlarnir urðu að gera sér 57,3% aflahlut að góðu, sem nægði þó í 3. sætið.
Úrslit og spil má sjá hér