Fyrsta keppni vetrarins hjá BR er að skella á.
mánudagur, 23. september 2019
Þriðjudaginn 24. September hefst þriggja kvölda butler-tvímenningur hjá Bridgefélagi Reykjavíkur. Reiknað er með að spila allir við alla á kvöldunum þremur (kannski tvisvar) en það fer algerlega eftir þátttöku. Stefnt á 3-4 spil á milli para. Mjög æskilegt er ef sem flestir gætu skráð sig fyrir fram á Fb eða skilaboðum á Ómar eða Þórð.