Hermann Friðriksson og Páll Bergsson unnu Páskatvímenning BR
þriðjudagur, 16. apríl 2019
Í kvöld var spilaður Páskatvímenningur Bridgefélags Reykjavíkur, sem jafnframt var silfurstigamót. Hermann Friðriksson og Páll Bergsson sigruðu nokkuð örugglega með 62,5% skor.
Nú verður hlé vegna Úrslita Íslandsmótsins í sveitakeppni sem verða 25-28 apríl. Spilaður verður einmenningur þriðjudaginn 07. maí. Allir velkomnir.