Rangæingar -- Utanbæjarmenn
Sl. þriðjudag flykkumst við Rangæingar á Heimaland til að leika 3ju umferð í Samverkstvímenningnum. Til leiks mættu 12 pör.
Bestir, eins og svo oft áður, voru Sigurður Skógabóndi og Jói nýbúi á Selfossi, með 63,0% skor. Næstir inn urðu Björn berserkur og Billi Selfyssingur með 60,9% skor og þriðju Sigurjón Pálsson og Garðar Selfyssingur með 56,7% skor. Þetta kvöld fór því ekki sérlega vel fyrir okkur Rangæinga og sér töluvert á stolti okkar. Talið er að utanbæjarmenn hafi verið að verki.
Garðar leysti einmitt Sýslumannsfrúna af og gerði það vel. Frúin var óvænt kölluð aftur til Færeyja, í þetta sinn á vegum biblíuskóla Þórshafnar, til að flytja erindi á ráðstefnu á vegum skólans. Því eins og menn, og fjölmargar konur, vita er nafni afar bókhneigður og sérstaklega vel lesinn í biblíusögunum. Eðlilega flytur nafni erindi sín á dönsku og hefst fyrsta erindið einmitt á orðunum "Det var brændevin í flasken da vi kom......"
Úrslit og spil má sjá hér og stöðuna í Samverkstvímenningnum eftir 3 kvöld af 5 hér.