Rangæingar -- Ágætis skor

miðvikudagur, 6. mars 2019

Þeir stóðu sig vel snáðarnir sl. þriðjudag, þegar fyrsta kvöld af fimm var leikið í Samverkstvímenningnum.  "Ekkert sérstakt skor samt" sagði Billi þegar úrslitin voru kunn.   Þeir Bjössi enduðu með 69,7% skor, sem er ágætt af ekki eldri mönnum.

Næsta sæti vermdu Bergþórshvolsbræðurnir með 57,0% skor og loks má nefna að slátrarinn og skiptstjórinn náðu 55,2% skori.   Svo skemmtilega vill til að þeir flokksbræður eru á leið til keppni á erlendri grund, völdu sjálfa sig í úrvalslið Rangæskra spilara sem heldur til Færeyja á föstudaginn til að stíga Vikivaka við frændur okkar Færeyinga.

Skrásetjari þarf að fara að pakka og því verður pistillinn ekki lengri.  Góðar stundir!

Úrslit og spil má sjá hér

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar