Kópsvogur vann Bæjakeppnina við Hafnarfjörð

föstudagur, 22. mars 2019

Bæjakeppni Hafnarfjarðar og Kópavogs var spiluð í gærkvöldi að Flatahrauni 3 í Hafnarfirði. Spilaður var opinn butlertvímenningur og var skor fimm efstu para í hvoru liði látið gilda til úrslita í bæjarkeppninni. Kópavogsmenn höfðu góða forystu allt þar til í síðustu umferðinni, en þá var átta efstu pörunum úr hvoru liða raðað saman og við það jafnaðist keppnin verulega. Kópavogsbriddsarar höfðu þó sigur með 109 ipmum gegn 101 ipma Hafnfirðinga. Ákveðið var að þessi keppni yrði árlegur viðburður her eftir.

HEIMASÍÐAN

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar