Halamótið næstu helgi. Skráningu líklega lokið

miðvikudagur, 27. mars 2019

Hrossakjetsmótið á Hala Í Suðursveit verður nú um helgina, 30-31 mars. 32 pör eru skráð og ekki víst hvort hægt er að taka við fleirum. Reiknað er með að spilaðar verði 21 umferð með 4 spilum í umferð.

Þetta er frábært tækifæri til að dvelja eina helgi í sveitasælunni á Hala í Suðursveit. Þar er Þórbergssetur, safn til heiðurs Þórbergi Þórðarsyni heitnum. Alveg magnað safn. Einnig hægt að stoppa á á Hvolsvelli og kíkja á LAVA-safnið í leiðinni.

SKRÁNINGARLISTI

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar