Bæjakeppni Hafnarfjarðar og Kópavogs á fimmdudaginn

þriðjudagur, 19. mars 2019

Bæjakeppni Kópavogs og Hafnarfjarðar fer fram fimmtudagskvöldið 21. mars kl. 19:00 Spilaður verður butler-tvímenningur, sjö umferðir eftir monrad, fjögur spil í umferð. Fimm efstu pör frá hvoru félagi munu gilda í Bæjakeppninni. Nýr farandbikar verður afhentur í fyrsta skipti og auk þess góð verðlaun fyrir efstu pör.

Keppnin fer fram á spilastað Hafnfirðinga, Hraunseli, Flatahrauni 3.

Öllum frjálst að mæta en keppnisstjóri mun merkja þau pör sem tilheyra hvoru félagi fyrir sig. 

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar