Rangæingar -- Með nesti og nýja skó
Sl. þriðjudag réðust úrslitin í sveitakeppninni, þegar leikin var 5. og síðasta umferð mótsins.
Toppsveitirnar tvær gátu báðar unnið, ef þeir næðu sínu besta og keppinauturinn misstigi sig í sínum leik. Svo fór að hvorug sveitin náði sínu besta, misstigu sig báðar og önnur illilega.
HLH-flokkurinn mætti YES-mönnum og fótbrotnaði eiginlega. Tapaði leiknum illa, eða 15-5. Á næsta borði sátu Óðmenn og öttu kappi við fallkandidatana í sveit Sykurmolanna. Óðmenn náðu að vísu í 11 stig, gegn 9 Sykurmolanna en það dugði þeim ekki. HLH fagnaði toppsætinu að leikslokum, með tæp 4 stig í forskot á Óðmenn. "Það er bara ekki gott að spila svona utan sveitar" sagði ættfaðirnn í Neðra-Dal og formaður HLH-flokksins, vígamóður að leikslokum, "enda ekkert hægt að virkja hér". Í gærkvöldi var nefnilega spilað í Gunnarshólma í A-Landeyjahreppi hinum forna en ekki á heimavelli okkar að Heimalandi í V-Eyjafjallahreppi hinum forna en V-Eyjafjallahreppur er einmitt heimasveit þeirra Neðra-Dals feðga. "Fer sjaldan með drenginn út fyrir hreppamörkin og hann er bara ekki vanur svona útstáelsi. Bitnaði á spilamennsku drengsins. En þetta slapp".
Þursalaus þursaflokkurinn átti endasprett mótsins. Höfðu vermt botnsætið allt mótið og á stundum næsta örugglega. En það breyttist í gær þegar þeir tóku Lónlí blú bojs á hné sér og rassskelltu með 16 stigum en hnípnir og einmana röltu sjálfstæðismennnirnir heim með 4 stig. Við sigurinn vippaði Þursaflokkurinn sér upp í 3ja sæti mótsins. "Þetta eru alltof stutt mót" sagði Tottenhamtröllið en sveitin fékk 31 stig af sínum 44 í síðustu tveimur umferðunum.
Úrslit sveitakeppninnar má sjá hér
Butler og spil úr fyrri hálfleik hér og þeim seinni hér. Úrslitin í Butlernum, sem verðlaunaður verður sérstaklega, eru svo hér
Næsta þriðjudag er ölkvöld. 28 spila barometer og verðlaun verða veitt í öllum flokkum.