Hrólfur og Oddur Hjaltasynir orðnir efstir í BR
þriðjudagur, 19. febrúar 2019
Annað kvöldið af fjórum í Aðaltvímenningi Bridgefélags Reykjavíkur var spilað í kvöld. Besta skori kvöldsins náðu Hrannar Erlingsson og Sverrir G Kristinsson með 62,3% skor en efstir samanlagt eru Hrólfur og Oddur Hjaltasynir með 756 stig sem er 57,3% skor.