Rangæingar -- Stefnir í einvígi

miðvikudagur, 30. janúar 2019

3. umferð af 5 í sveitakeppni félagsins var leikin sl. þriðjudag.    Það stefnir í grjóthart einvígi Óðmanna og HLH-flokksins um sigur í mótinu og vel við hæfi enda með eftirsóknarverðari titlum sem keppt er um hér í Rangárþingi.

Báðir sveitir unnu sína leiki með áþekkum mun.   HLH lagði sykurmolana frá Varmahlíð og Óðmenn tóku Lónlí blú bojs til bæna.    Þessar sveitir eru nú í sérflokki og búnir að stinga af í titilbaráttunni.   Minni spámenn eru svo í 3. til 5. sæti en Þursaflokkurinn rekur einn lestina.  

Úrslit leikja og stöðuna í sveitakeppninni má sjá hér.  

Butler úr fyrri hálfleik hér og þeim seinni hér.  Staðan í Butlernum er svo hér.

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar