Rangæingar -- Stefnir í einvígi
3. umferð af 5 í sveitakeppni félagsins var leikin sl. þriðjudag. Það stefnir í grjóthart einvígi Óðmanna og HLH-flokksins um sigur í mótinu og vel við hæfi enda með eftirsóknarverðari titlum sem keppt er um hér í Rangárþingi.
Báðir sveitir unnu sína leiki með áþekkum mun. HLH lagði sykurmolana frá Varmahlíð og Óðmenn tóku Lónlí blú bojs til bæna. Þessar sveitir eru nú í sérflokki og búnir að stinga af í titilbaráttunni. Minni spámenn eru svo í 3. til 5. sæti en Þursaflokkurinn rekur einn lestina.
Úrslit leikja og stöðuna í sveitakeppninni má sjá hér.
Butler úr fyrri hálfleik hér og þeim seinni hér. Staðan í Butlernum er svo hér.