Rangæingar -- Vel spilaðir
Sl. þriðjudag mættu 12 pör á Heimaland til að leika 2. umferð í Butler-tvímenningi félagsins. Meðal þátttakenda voru Héraðshöfðinginn og Strandamaðurinn sterki. Þeir vinirnir voru nýkomnir heim úr mikilli Bjarmalandsför en svo skemmtilega vildi til að þeir dvöldu um helgina við spil í kaupstaðnum. Tóku þar þátt í deildakeppninni. Unnu einhverja, gerðu jafntefli við aðra en töpuðu fyrir einhverjum líka, svo útkoman varð í sæmilegu meðallagi. En það er ekki aðalatriðið, heldur hve vel drengirnir komu undan helginni.
Léku við hvurn sinn fingur við heimkomuna og náðu 77 impum lipurlega í hús. Næstir inn varð spútnik par haustsins, Arnarhólsöðlingurinn og Grundargæinn, með 59 impa. Þriðju urðu svo Skógabóndinn og vertinn með 19 impa. "
Úrslit og spil má sjá hér og stöðuna eftir 2 kvöld af 5 hér