Rangæingar -- Annað er betra

miðvikudagur, 7. nóvember 2018

Eftir endalausar upphitanir var loksins komið að alvörunni sl. þriðjudag á Heimalandi.  Gjaldkerinn dró upp veskið og gaukaði að spilastjóra nokkrum bjórum, sem hann hafði fengið á góðu verði í einhverri nauðþurftabúð. Sendingunni fylgdi óskilyrt heimild til útdeilingar. Keppt var í fjölmörgum flokkum og allir fengu eitthvað því fallegt, mismikið þó.

M.a. unnu vinnumennirnir úr Varmahlíð flokk andans manna, með 45,4% skor.  Báðir eru þeir einkar ljóðelskir og óvenju bókhneigðir.   

Nýliðaflokkinn unnu virkjanasinnarnir og feðgarnir úr Neðra-Dal, með 42,9% skor.  Þeir hafa raunar unnið þennan flokk síðustu 10 ár.   

Flokk framsóknarmanna vann okkar ástsæli formaður með Friðrik litla með sér, með 46,1% skor.  

Enginn mætti hins vegar til leiks í flokki íhaldspunga, þar sem Ægissíðugoðinn mætti ekki.   Öðrum er ekki til að dreifa í þeim flokki eftir að presturinn sagði sig úr flokknum og slátrarinn flutti austur undir Moskvu.

Þrátt fyrir að leggja sig nokkuð fram við að vinna bara alls ekki, urðu Strandamaðurinn staurblanki, enda útgerðarmaður þjakaður af veiðigjöldum, og Héraðshöfðinn efstir með 61,1% skor.   Kom það mörgum skemmtilega á óvart og ekki síst skrásetjara sjálfum, enda lögðum við okkur í framkróka um að verða ekki efstir.  Eða alla vega var spilamennskan þannig.   Í refsingarskyni, fyrir lélega spilamennsku á köflum, var beitt dagsektum.  Einn bjór af fjórum var dreginn af hvorum og millifærður niður í sæti 2.  Þar sátu líka menn sem áttu góð verðlaun skilið, Ellinn og Kallinn með 60,4% skor.  Þeir fengu 4 bjóra hvor að launum fyrir góða frammistöðu.  Að vísu er talið líklegt að það taki þá eitthvað fram á árið 2020  gera verðlaunafénu skil.   Þriðju í mark, fisléttir á fæti, urðu svo Dúason hinn digri og Brynjólfur gestur Gestsson úr Fljótavík með 58,9% skor.

Úrslit og spil má sjá hér

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar