Rangæingar -- Þjálfarinn
Sl. þriðjudag komum við Rangæingar saman á Heimalandi að vanda. Það var gaman. Til leiks mættu 11 pör.
Eftir að hafa sleppt óþarfa upphitunum í haust mættu Moldnúpsvertinn og Skógabóndinn öflugir til leiks. "Þú þarft að æfa þig drengur" sagði Skógabóndinn í við Jóa í haust. "Ég þarf hins vegar enga æfingu og má auk þess heldur ekkert vera að því að þjálfa þig, svona í miðri sláturtíðinni" hélt bóndinn áfram. "Ég hringi í aldinn meistara á Selfossi og kem þér í þjálfun hjá honum, hann gerir það fyrir mig karlinn að undirbúa þig þannig að þú verðir liðtækur".
Og Jói var sendur í vist á Selfoss. Þar tók Garðar Garðarsson við drengnum og við tóku þrotlausar æfingar. Garðar fór með drenginn á öll möguleg spilakvöld á Selfossi. Þeir fóru í framsóknarvist, spiluðu Hornafjarðarmanna og loks tók við lokaundirbúningurinn, þriggja kvölda keppni hjá Bridgefélagi Selfoss. Þar kom berlega í ljós að Garðar er lipur kennari, enda léttur á velli. Þeir unnu keppnina "Meira get ég ekki kennt þér góurinn. Þú ert útskrifaður úr akademíunni minni" sagði Garðar í kveðjuskyni og sendi Jóa heim með rútunni. ´
Ljóst var strax í fyrstu umferðunum í gær að námið hafði tekist vel. Þeir voru á og við toppinn allt kvöldið peyjarnir og enduðu í öðru sæti með 66,3% skor, sjónarmun á eftir Héraðshöfðingjanum og Strandamanninum, sem voru með 66,7% skor.
Þriðju í mark urðu svo Elli og Kalli, þeir góðu drengir, með 52,5% skor.
Tímapantanir hjá Garðari eru á netfanginu: bestikennarinn@langbestikennarinn.is
Svo er nóg komið af þessum eiflífðarupphitunum. Næst er ölkvöld, barometer, með verðlaunum í öllum flokkum.
Úrslit og spil má sjá hér