Rangæingar -- Meðalhófsreglan
Enn heimtast smalar af fjalli og fjölgaði sem því nam í hópnum á Heimalandi. Alls eru nú komnir 22 sauðir á hús en um 6 eru enn á útigangi. Við Rangæingar tileinkuðum spilakvöldið meðalhófsreglunni sem hefur verið talsvert í fjölmiðlum síðustu daga. Í anda hennar var kvöldið jafnt, kaffið mátulega lagað, spilin mátulega skemmtileg og úrslitin óvenjunálægt meðalhófi.
"Það grandar okkur ekkert" sagði vinnumaðurinn í Varmahlíð hróðugur, enda sérfræðingur í 3 gröndum. Varmahlíðarvinnumenn irnir urðu enda efstir með 57,5% skor. Næstir urðu annarssætissérfræðingarnir Sigurður og Torfi með 55,4% skor. Þriðja sætinu deildu af sönnu meðalhófi og í mesta bróðerni Örninn haukfráni og Óli danski, með 54,2% skor eins og Svavar bróðir og Ægissíðugoðinn.
Úrslit og spil má sjá hér