Miðvikudagsklúbburinn styrkir á Íslandsmót

þriðjudagur, 18. september 2018

Miðvikudagsklúbburinn ætlar að styrkja spilara á Íslandsmót kvenna í tvímenning og Íslandsmótið í einmenning.

Hægt verður að sækja um keppnisgjöld fyrir 3 pör á Íslandsmóti kvenna í tvímenning og 8 keppnisgjöld á Íslandsmótið í einmenning.

Til að geta fengið styrk þá þurfa spilarar að uppfylla eftirfarandi skilyrði:

...

Hafa spilað 4 sinnum hjá MIðvikudagsklúbbnum í vetur fyrir mót eða hafa spilað reglulega síðasta tímabil.

Ef umsækjendur verða fleiri en fjöldi styrkja, þá verður dregið úr innsendum umsóknum miðvikudagskvöldið fyrir mót.

Hægt er að sækja um með því að tala við keppnisstjóra á spilakvöldi MIðvikudagsklúbbsins.

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar