Miðvikudagsklúbburinn styrkir á Íslandsmót
þriðjudagur, 18. september 2018
Miðvikudagsklúbburinn ætlar að styrkja spilara á Íslandsmót kvenna í tvímenning og Íslandsmótið í einmenning.
Hægt verður að sækja um keppnisgjöld fyrir 3 pör á Íslandsmóti kvenna í tvímenning og 8 keppnisgjöld á Íslandsmótið í einmenning.
Til að geta fengið styrk þá þurfa spilarar að uppfylla eftirfarandi skilyrði:
...Hafa spilað 4 sinnum hjá MIðvikudagsklúbbnum í vetur fyrir mót eða hafa spilað reglulega síðasta tímabil.
Ef umsækjendur verða fleiri en fjöldi styrkja, þá verður dregið úr innsendum umsóknum miðvikudagskvöldið fyrir mót.
Hægt er að sækja um með því að tala við keppnisstjóra á spilakvöldi MIðvikudagsklúbbsins.