Fyrsta spilakvöld vetrarins hjá bridgefélagi nýliða 20. sept

miðvikudagur, 19. september 2018

Keyrum spilakvöld nýliða í gang fimmtudaginn 20. september.
Alltaf spilað í Síðumúla 37 á fimmtudögum fram að 13. desember nema annað sé auglýst.
Stefnt að 20 spilum í hvert sinn- c.a. 3-3,5 tímar.

Best er að mæta í pörum en alltaf hægt að redda málum þó spilarar mæti stakir.
Spilastjóri gengur á milli og aðstoðar við sagnir og annað.
Fyrir vanari spilarana í hópnum þá smám saman bætt við sagnvenjum sem vinsælar í dag og einhverjir hafa heyrt um en kannski ekki með alveg á hreinu ennþá.
Hægt að prenta út sagnkerfið fyrir þá sem vilja en ágætt að geyma á milli spilakvölda og krota á og punkta hjá sér ýmislegt.

Facebooksíða bridgefélags nýliða

Spilagjald 1000 kr. og kaffi innifalið.

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar