Esther og Anna Þóra unnu Hausttvímenning BK

fimmtudagur, 27. september 2018

Hausttvímenningi Bridgefélags Kópavogs lauk nú í kvöld með sigri mæðgnanna Estherar Jakobsdóttur og Önnu Þóru Jónsdóttur. Þær fengu 115 stig sem er samanlögð prósentuskor úr tveimur kvöldum. Besta skori kvöldsins náðu hins vegar Ómar Óskarsson og Guðlaugur Bessason en það dugði þeim ekki til verðlaunasætis samanlagt.

HEIMASÍÐAN

Næsta fimmtudag byrjar svo þriggja kvölda butlertvímenningur og eru allir velkomnir. Spilað er í Gjábakka, Fannborg 8, á bak við Landsbankann við Hamraborg. Byrjað kl. 19:00

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar