Minningarmót á Borgarfirði-Eystri
mánudagur, 9. júlí 2018
Kæru briddsarar nær og
fjær.Helgina 25.-26. ágúst ætla
Borgfirðingar að heiðra minningu fallins félaga sem kvaddi okkur
alltof snemma í vetur. Minningamót Skúla Sveinssonar verður haldið
í félagsheimilinu Fjarðarborg á Borgarfirði eystri. Að mótinu
standa Já Sæll ehf (sem Skúli var einn eiganda að) og Briddssamband
Austurlands. Spilaður verður tvímenningur og stefnt er að því að
hafa peningaverðlaun en nánara fyrirkomulag verður auglýst síðar.
Sveinn Rúnar Eiríksson verður keppnisstjóri. Við munum spila á laugardegi fram að
kvöldverði og minningar/sögustund og svo klárum við mótið tímanlega
á sunnudegi svo allir komist með flugi heim um
kvöldið.