Rangæingar -- Lokahóf
Síðasta vetrardag komum við Rangæingar saman á varaheimavelli okkar, Gunnarshólma í A-Landeyjum, og héldum árlegt lokahóf okkar. Byrjuðum á því að veita verðlaun fyrir veturinn og lékum að því loknu 28 spila monrad barometer með þátttöku 14 para.
Á lokahófinu er einkar vel séð að menn hafi með sér nesti, enda vitum við það Rangæingar að menn eiga ekki að leggja nestislausir í langferðir. Nestisneyslan fór mis vel í menn, hvað árangur varðaði. "Mér fannst við vera góðir í kvöld, við sátum allt kvöldið á fyrsta borði" sagði glerskerinn kátur að leikslokum og klappaði makker sínum á bakið. "Nei makker þar vorum við nú ekki" svaraði fisksalinn, "við vorum á 7. borði".
Allir fengu ölverðlaun, enda við Rangæingar ósparir á verðlaunafé. Ögn meira en þó varla sem heitið geti, fengu efstu þrjú sætin að launum.
Hnífurinn er farinn að ryðga nokkuð hjá slátraranum, stálið ónýtt og byssan stendur á sér, enda slátrarinn ekki drepið grip lengi. Hann og trillukarlinn urðu þó í þriðja sæti, enda með grunnmálið, keiplengd og dýpi á hreinu. 54,28% skor.
Í öðru sæti urðu Sigurjón og afleysinga-Örninn með 55,1% skor. Örn er svona super-sub, sem menn þekkja úr boltanum.
Birnir geta verið grimmir en okkar Bjorn var alls ekki grimmur þetta kvöld. Þvert á móti mildur, eiginlega afar mildur. Það gerði honum bara gott og unnu þeir leikbræður Dúason og Gestsson kvöldið með nokkrum yfirburðum, 62,2% skor.
Við Rangæingar áttum góðan vetur að vanda og göngum nú til vorverka með bros á vör. Einhverjir fara að huga að því að bylta landi og bera á. Sauðburður er framundan hjá öðrum og enn aðrir fleyta bát úr nausti og hugsa til metróðra á komandi sumri. Golfkylfur taka við af spilunum hjá sumum.
Áður förum við þó til Finnlands, þann 28. apríl nk., og heilsum upp á þarlenda spilara. Það er gríðarlegt tilhlökkunarefni. Gleðilegt sumar!
Úrslit og spil má sjá hér