Rangæingar -- Útgjaldabann
Sl. þriðjudag létum við Rangæingar það eftir okkur að spila 2. umferð í Samverkstvímenningnum. Ekki voru notuð forgefin spil þetta kvöldið enda gjaldkerinn fjarverandi og hafði lagt strangt útgjaldabann á okkur hina meðan hann væri í burtu. Því þorði enginn að panta spil, né kaupa mjólk út í kaffið, enda meðhjálparinn strangur. "Þið hafið auðvitað ekkert að gera með rándýr, forgefin spil meðan ég er í burtu". Því var handgefið að gömlum sið og gekk bara vel.
Presturinn sat þar með uppi meðhjálparalaus og varð að hóa í litla meðhjálparann til að aðstoða sig við spilamennskuna. Litli meðhjálparinn ætlaði aldrei að koma presti í hempuna, týndi ritningarorðunum og leiddi prestinn ítrekað í ógöngur. Enduðu þeir síðastir þetta kvöld. "Þeir síðustu munu verða fyrstir" mælti presturinn og bætti við: "Það er nær ógjörningur að messa án góðs meðhjálpara. Hertu þig nú heim Kristján minn".
Gömul spil, sem búið er að spila áður, virðast henta skrásetjara og Héraðshöfðingjanum betur en þessi nýmóðins tölvugefnu spil. Alla vega urðu þeir, flestum að óvörum, langefstir þetta kvöld með 67,5% skor. Efst er í skrásetjara að biðja gjaldkera að framlengja útgjaldabannið svolítið, nema hvað gott væri að fá mjólkurdreitil út í kaffið. Næstir inn með 53,8% skor voru fisksalarnir fisléttu og þriðju inn urðu öðlingarnir Elli og Kalli. Elli minn er farinn að heyra svolítið illa og Kalla gekk illa að ná sambandi við hann yfir borðið. "Heyrir þú til mín Elli minn?" "Já, ég kom keyrandi" svaraði Elli. "HEYRIR ÞÚ TIL MÍN ELLI?" "Nei, nei, við vorum ekki fleiri".
Úrslit kvöldins má sjá hér og stöðuna eftir tvö kvöld í Samverkstvímenningnum hér