Rangæingar -- Stórir skór

miðvikudagur, 7. mars 2018

Þá er hafin hjá okkur Rangæingum 5 kvölda tvímenningur, Samverkstvímenningurinn.   Okkar elskaði formaður er enn að sóla sig á Tenerife en þar heldur hann upp á sigur sinn og sinna manna í sveitakeppninni, sem er nýlokið.    Taumlaus gleði þar.    

Tottenhamtröllið varð að leita út fyrir landsteinana eftir makker þetta fyrsta kvöld, enda vilja fair, ef nokkrir, leika við Tottenhammenn þessa dagana.  Friðrik er vel að manni, 197 cm. að hæð og vigtar 111 kg., óslægður með haus.   Hann gat eðlilega ekki fengið einhvern minni spámann til að leysa formanninn af.  Fann loks einn á bökkum Ölfusár, á Stóra-Ármóti,  sem honum sýndist henta ágætlega í sætið á móti sér.  Sá átti líka í fullu tré við tommustokk smiðsins og náði auðveldlega lágmarkslengd, 197,5 cm.   Vigtin sprakk hins vegar við vigtunina og því eru ekki til tölur um þyngd bústjórans.  Auðvitað er bagalegt fyrir lesendur að vita hana ekki en búið er að kaupa stærri vigt.

Stórmennin byrjuðu með látum.    Tóku einir 7 spaða í fyrsta spili og leyfðu svo andstæðingunum kurteislega að taka sig einn niður í 4 hjörtum í spili 2.  Fyrstu tvö spilin gáfu þeim 19 stig af 20 mögulegum en andstæðingarnir sátu eftir með 1 stig.  Og hverjir voru andstæðingarnir? Nú, vesalings skrásetjarinn og slátrarinn. Og þar með voru úrslit kvöldsins í raun ráðin.  "Við þurftum lítið meira", sagði Höskuldur og hló hátt. "Gaman að spila við ykkur strákar".  Þeir félagar í stóru skónum enduðu efstir með 57,3% skor.  Næstir inn voru Sigurður og Torfi, með 56,1% skor, sem stór sá á eftir útreiðina í fyrstu umferð.  Jafnir í þriðja og fjórða sæti, Billi og Bjössi og Sigurjón og Siggi, með 54,5% skor.  

Úrslit og spil má sjá hér

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar