Rangæingar -- Lúðrasveitin

miðvikudagur, 7. febrúar 2018

Sl. þriðjudag settumst við Rangæingar að spilum að vanda, lékum 5. umferð af 7 í sveitakeppni félagsins.

Saxófónmenn eru hreinlega óstöðvandi.  Blásturinn er svo kröftugur að engu er líkara en leikið sé á túpu, fremur en saxófón þegar þeir spila. Alla vega eru þeir ekki með kurteislega þverflautu, það er ljóst.    Morgan litli Kane fékk að kenna á blæstrinum á þriðjudaginn.  Kane hélt lengi vel í við hinn ógnvænlega lúður en missti leikinn í naumt tap í síðustu spilinum.  Þar með situr gljáfægt saxið þægilega í efsta sæti.

Litli Jón ætlaði sér að minnka bilið á toppnum þegar þeir mættu botnsveit Njálssona.   En þeir Brennu-Njáls menn reyndust engan veginn útbrunnir, þó þeir komi frá Bergþórshvoli og úr varð stórmeistarajafntefli, þó heldur Njálssonum í hag.

Sæfinnur sjókall er enn stjórnlítill á reki en kapteinninn hefur ekki sést í tvær vikur, varð eftir á hafnarknæpu í Hull síðustu siglingu.   Það er gömul saga og ný, hent margan manninn.   Sjókallinn hefur þó reynt eftir mætti að stýra upp í og héldu jöfnu í botnslagnum við Bangsímon. 

Af Mikka ref er það að segja að hann sat úti í horni í yfirsetu.  Þáði 12 stig fyrir það og heldur 3ja sætinu þar með.   Sveitin lék innbyrðis í butlernum.   Annar vængurinn fór ekki vel með hinn í þeirri orrahríð og sannaðist þar með hið forkveðna að enginn er annars bróðir í leik.

Úrslit og stöðu í sveitakeppninni eftir 5 umferðir má sjá hér

Butler og spil úr fyrri hálfleik hér og þeim seinni hér 

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar