Rangæingar -- Litli Jón belgist út
Sl. þriðjudag lékum við Rangæingar 2. umferð í sveitakeppninni.
Litli Jón og hans menn tóku Bangsímon drengina til bæna. Af úrslitum leiksins er ljóst að Bangsímonarnir kunnu engar bænir fyrir og lærðu fáar. Fengu einungis 3 stig en predikararnir 17 að launum fyrir sálmalesturinn. Litli Jón bætti þar með stöðu sína á toppnum, kominn með 37 væn stig. Er nú 4 stigum á undan Stjána saxófón sem sat yfir. Stjáni lék létta standarda á saxið fyrir sína menn í yfirsetunni og áttu preskakallarnir næst besta Butler kvöldsins.
Mikki refur atti kappi við Njálssyni en höfðingi sveitarinnar býr einmitt á Bergþórshvoli. Mikki refur lagði drengina 12-8 en það var ekki að þakka gömlu refunum í sveitinni, yrðlingarnir (úr goti 1987 og 1993) áttu hins vegar góðan leik líkt og í fyrstu umferð og skiluðu þessum stigum í hús.
Sæfinnur sjókall er kominn á flot og flýtur. Einhver leki er þó enn í bátnum því út láku 12 stig til Morgan Kane en sjókallinn landaði 8 stigum eftir róðurinn. Mest karfatittir og ufsi. Skipstjórinn hyggst róa á fengsælli mið næst þar sem vænta má mikið betri afla en hann ætlaði að fá á síðustu miðum.
Úrslit 2. umferðar og stöðuna í sveitakeppninni má sjá hér.