Aðalsveitakeppni BK lauk í kvöld
fimmtudagur, 8. desember 2016
Aðalsveitakeppni Bridgefélags Kópavogs lauk nú í kvöld. Sveit
GSE hafði tryggt sér sigurinn fyrir síðustu umferðina en sveitir
Páls Þórssonar og Bingi og Feðgarnir héldu sínum verðlaunasætum sem
þeir sátu í þá þegar.
Á eftir var spilaður léttur tvímenningur með 12 spilum og má sjá öll úrslit hér.
Næsta fimmtudag verður Jólatvímenningur, með allskyns jólaveitingum og jafnvel óvæntum verðlaunum
Spilamennska hefst kl. 19.00 í Gjábakka, Fannborg 8