Staðan eftir átta umferðir af 13 í Aðalsveitakeppni BK
fimmtudagur, 17. nóvember 2016
Þegar Aðalsveitakeppni Bridgefélags Kópavogs er rétt rúmlega hálfnuð er sveit GSE úr Hafnarfirði komin með nokkuð afgerandi forystu, eða 31 stigi meira en Bingi og feðgarnir. Ein leiðrétting var gerð í leik Vina og Hjálmars þar sem geimtala var slegin inn í ranga átt.